

Læknar óskast í spennandi uppbyggingu teymismiðaðar heilsugæslu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) auglýsir eftir þremur sérfræðilæknum sem munu gegna lykilhlutverki í þróun og innleiðingu nýrrar aðferðafræði í heilsugæslu.
Unnið verður eftir nýju þjónustulíkani og breyttu verklagi þar sem teymisvinna fjölbreyttra heilbrigðisstétta og forflokkun erinda verða í forgrunni.
Markmiðið með teymismiðaðri heilsugæslu er að nýta sérfræðiþekkingu allra heilbrigðisstétta sem best. Þetta er þróun sem styrkir þverfaglega samvinnu og gefur læknum meira svigrúm til að einbeita sér að málum skjólstæðinga sem virkilega þurfa á læknisaðstoð að halda. Öll erindi verða forflokkuð af reynslumiklum hjúkrunarfræðingum og komið í réttan farveg hjá þeim heilbrigðisstarfsmanni sem er best til þess fallinn að leysa úr því. Teymisvinna verður lykillinn að enn betri þjónustu við skjólstæðinga.
Heilsugæslan Efra-Breiðholti verður fyrsta heilsugæslustöðin til að formlega innleiða nýtt þjónustulíkan innan HH. Stöðin mun því gegna lykilhlutverki í þróun heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og verða fyrirmynd fyrir aðrar heilsugæslur.
Við bjóðum upp á:
-
Þverfaglegt teymisumhverfi þar sem sérfræðiþekking lækna nýtist að fullu.
-
Tækifæri til að móta nýtt þjónustulíkan fyrir HH.
-
Stuðning¿við faglega þróun og þátttöku í rannsóknarverkefnum.
-
Nýtt launamódel sem tryggir samkeppnishæf laun og góð starfskjör.
-
Góða starfsaðstöðu í húsnæði sem er sérhannað fyrir heilsugæslu
Um er að ræða ótímabundin störf í 60-100% starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst / september nk. eða eftir samkomulagi.
Starfssvið sérfræðilækna er víðtækt á heilsugæslu og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, opinni móttöku og handleiðslu nema og unglækna. Þeir veita fræðslu og upplýsingar og leiðbeina skjólstæðingum og aðstandendum. Læknar á Heilsugæslunni Efra breiðholti munu gegna lykilhlutverki í innleiðingu á nýju þjónustulíkan og taka virkan þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Læknar munu starfa í þverfaglegu teymi með öflugu starfsfólki annarra fagstétta hjá Heilsugæslunni Efra-Breiðholti. Þar starfa sjúkraþjálfarar, sjúkraliðar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður. Stöðin hefur að auki öfluga heilsueflandi móttöku og heilsuvernd aldraða þar sem lífstílshjúkrunarfræðingur og öldrunarhjúkrunarfræðingur starfa.
- Íslenskt lækningarleyfi
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum eða að viðkomandi sé á lokastigi sérfræðimenntunar
- Áhugi á umbótaferli, breytingum og þróun heilsugæsluþjónustu
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Enska
Íslenska












