Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Leiðbeinandi í Öldunni - virkni og hæfing fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu

Aldan í Borgarbyggð auglýsir eftir leiðbeinenda í Ölduna, virkni og hæfingu fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu.

Í Öldunni fer fram starfs- og félagsþjálfun þar sem áhersla er lögð á að viðhalda og auka sjálfstæð vinnubrögð, starfsþrek og félagslega færni sem miðar að því að auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi og á almennum vinnumarkaði. Starfað er samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Um 100% starf er að ræða, tímabundið til eins árs með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í virkni og þjálfun þjónustuþega
  • Aðstoða þjónustuþega í vinnuprófunum
  • Félagslegur stuðningur við þjónustuþega
  • Aðstoða þjónustuþega við athafnir daglegs lífs
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af starfi með fötluðu fólki og fólki með fjölþættan vanda er kostur 

  • Þekking á starfsemi hæfingarstöðva og verndaðra vinnustaða er æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að sýna umhyggju, skilning, virðingu og þolinmæði 
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði 
  • Ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð 
Fríðindi í starfi
  • 36 klukkustunda vinnuvika
  • Heilsustyrkur
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur9. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólbakki 4, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar