
Sveitarfélagið Ölfus
Okkur vantar hresst starfsfólk í Frístundina Brosbæ!
Okkur í Grunnskólanum í Þorlákshöfn vantar hresst starfsfólk í Frístundina Brosbæ á næsta
skólaári. Í skólanum eru um 290 nemendur og starfsmenn eru um 70 talsins. Skólinn vinnur
samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og teymiskennslu auk þess sem unnið er að
innleiðingu leiðsagnarnáms. Þá tekur skólinn þátt í verkefninu um Grænfána og Heilsueflandi
skóla. Einkunnarorð skólans eru vinátta, virðing og velgengni. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst!
Viltu vita meira? Kíktu þá á heimasíðuna okkar: https://www.olfus.is/grunnskolinn.
Um er að ræða stöður þar sem ráðningahlutfall er um 50% og vinnutími frá kl. 13 - 16:30
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við Frístund sem er þjónusta fyrir börn í 1. – 4. bekk eftir að skóla lýkur á
daginn. - Hlutverk frístundaheimilis er að bjóða uppá skapandi umhverfi þar sem
starfshættir einkennast af frjálsum leik og skipulögðu starfi. - Sumarfrístund er starfrækt á sumrin þar sem boðið er upp á heils- og hálfsdags
námskeið fyrir 6 – 9 ára börn. Áhersla er lögð á hreyfingu, sköpun og útiveru.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Góð íslenskukunnátta.
- Reynsla af starfi með börnum er kostur.
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.
Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Egilsbraut 35, 815 Þorlákshöfn
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniKennslaMetnaðurSamviskusemiStundvísiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarforstöðumaður í frístundastarfi fatlaðra barna
Kringlumýri frístundamiðstöð

Stuðningsfulltrúi
Borgarbyggð

List- og verkgreinakennari - Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli

Grunnskólakennari - Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli

Leikskóli Húnabyggðar
Húnabyggð

Sérfræðingur með sértæka ábyrgð á frístundaheimilinu Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi
Frístundaþjónusta í Árborg

VISS, vinnu- og hæfingarstöð í Þorlákshöfn leitar eftir leiðbeinanda
Sveitarfélagið Ölfus

Aðstoðarforstöðumaður í frístund Lindaskóla
Lindaskóli

Valhúsaskóli - íslenskukennari á unglingastigi
Seltjarnarnesbær

Frístundaheimili Árborgar óska eftir frístundaleiðbeinendum og stuðningsstarfsmönnum
Frístundaþjónusta í Árborg

Kennari í bíliðngreinum við Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli

Stuðningsfulltrúi við Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli