

Sérkennsla/stuðningur
Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa í leikskólanum Drafnarsteini.
Drafnarsteinn er sex deilda leikskóli á tveimur starfsstöðum vestast í Vesturbæ Reykjavíkur sem eru Drafnarborg á Drafnarstíg 4 og Dvergasteinn sem er við Seljaveg 12. Í leikskólanum er unnið eftir hugmyndafræðinni Ótrúleg eru ævintýrin og því mikil áhersla á málörvun og læsi almennt. Drafnarsteinn er einnig Grænfánaskóli með regnbogavottun.
Starfið er laust þegar skólinn opnar aftur eftir sumarfrí 6.ágúst, eða eftir samkomulagi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning bæði í hóp inni á deild og í sérkennslu.
Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum. Næsti yfirmaður er sérkennslustjóri. Unnið er í teymi sérkennslu og stuðnings.
Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi nauðsynleg.
Reynsla af sérkennslu
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Mjög góð íslenskukunnátta.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Sundkort, samgöngustyrkur, heilsustyrkur og menningarkort eru í boði fyrir starfsmenn :)
Íslenska










