
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Málstjóri í farsæld
Fjölskyldusvið Borgarbyggðar leitar að öflugum fagaðila til að sinna málsstjórn og stýra þjónustu til barna og fjölskyldna sem hafa þörf fyrir samþætta þjónustu á 1., 2. og 3. stigi. Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt og spennandi starf í umhverfi sem reynir á framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni.
Um er að ræða starf til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Málstjóri samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
- Veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barna á 1., 2. og 3. stigi til barna, foreldra og annarra aðila og stofnanna
- Greining á þjónustuþörfum barna og fjölskyldna þeirra
- Ráðgjöf til stofnanna í sveitarfélaginu sem vinna með börnum
- Veita ráðgjöf og stuðning við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu
- Gerð og eftirfylgd stuðningsáætlana og mat á árangri
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi innan sveitarfélagsins
- Heldur utan um lykiltölur og verkferla sem snúa að þjónustunni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. félagsráðgjöf, sálfræði, þroskaþjálfun, kennsluréttindi eða önnur menntun, auk þekkingar eða náms á sviði farsældar barna.
- Víðtæk reynsla og þekking af þverfaglegri teymisvinnu og málstjórn.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð viðhorf.
- Víðtæk þekking og reynsla af stoðþjónustu í leik- og grunnskólum er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslensku- og tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur til starfsmanna
- Handleiðsla
Auglýsing birt26. júní 2026
Umsóknarfrestur10. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (10)

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Borgarbyggð

Umsjónarmaður frístundar í Borgarnesi
Borgarbyggð

Launafulltrúi
Borgarbyggð

Náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Borgarfjarðar
Borgarbyggð

Leiðbeinandi í Öldunni - virkni og hæfing fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Varmalandi
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund á Kleppjárnsreykjum
Borgarbyggð

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Lækur óskar eftir deildarstjóra/leikskólakennara
Lækur

Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær

Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi - tímabundið starf til 31. des.2026
Hafnarfjarðarbær

Fagstjóri í hreyfingu
Heilsuleikskólinn Kór

Leikskólinn Eyrarskjól - Leikskólakennari/Leiðbeinandi
Hjallastefnan leikskólar ehf.

Umsjónarkennari á yngsta stig í Sunnulækjarskóla
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Kennari eða leiðbeinandi í Leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi á Ströndum - grunnskólakennari
Árneshreppur