

Umsjónarkennari á yngsta stig í Sunnulækjarskóla
Auglýst er staða umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu og skapandi skólastarf.
Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp jákvæðan starfsanda og sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
- Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Íslenska










