Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Hraunvallaleikskóli

Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í fullt starf frá 4. ágúst 2026

Hraunvallaleikskóli er staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði í sama húsnæði og Hraunvallaskóli sem stuðlar að samþættu námi barnanna frá því þau stíga sín fyrstu skref í leikskóla að sextán ára aldri. Gildi skólans endurspegla allt starf sem eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Í Hraunvallaleikskóla er unnið eftir hugmyndafræði John Dewey um virka þátttöku barnsins í námi með áherslu á leik og samfélagslega þátttöku barna. Í skólanum er unnið með SMT-skólafærni þar sem æskilegri hegðun er veitt aukin athygli með markvissu hrósi og umbun. Skýr fyrirmæli eru höfð að leiðarljósi og rækt lögð við góð samskipti.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Upplýsingar um starfið veitir Pálína Hildur Sigurðardóttir, leikskólastjóri, [email protected] og Ásrún Sigrid Steindórsdóttir Olsen, aðstoðarleikskólastjóri, [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt26. júní 2026
Umsóknarfrestur31. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Smáralundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi - tímabundið starf til 31. des.2026
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Leikskólastjóri - leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi óskast til starfa á skammtímadvöld fyrir fötluð ungmenni - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íþróttakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í baðvörslu - Íþróttahús Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi í Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Aldan - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Móttöku- og þjónustufulltrúi í Hafnarborg 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfasteinn
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náms- og starfsráðgjafi í afleysingar - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær