

Leikskólinn Lækur óskar eftir deildarstjóra/leikskólakennara
Lækur er sex deilda leikskóli staðsettur í Kópavogsdal þar sem stutt er í góð og skemmtileg útivistarsvæði á öllum árstímum.
Í Læk er lagt upp með lýðræðislega nálgun í starfi með börnum. Leikskólinn leggur áherslu á að skapa fjölbreytilegt leikumhverfi sem ýtir undir ímyndunarafl, sköpunarkraft og tjáningu barnanna. Í Læk er góður starfsandi sem einkennist af virðingu, umburðarlyndi, gleði og jákvæðu viðmóti. Lækur er réttindaskóli UNICEF og einnig vináttuleikskóli sem vinnur með Blæ-vináttuverkefni í samvinnu við Barnaheill. Allar deildir vinna með Lubbi finnur málbein. Í haust byrjum við innleiðingu á lausnarhringnum sem er frábært verkefni.
Við leitum að öflugum deildarstjóra til að ganga til liðs við okkar góða starfsmannahóp.
Einkunnarorð leikskólans eru sjálfræði, umhyggja og virðing.
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun leikskólans.
- Skipuleggur og vinnur að einstaklingsmiðuðu uppeldi og menntun barnanna í samstarfi við samstarfsfólk.
- Ber ábyrgð á og tekur þátt í skipulagi og verkefnum deildarinnar/skólans.
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun/háskólamenntun.
- Reynsla af vinnu með börnum.
- Reynsla af stjórnun er kostur.
- Frumkvæði í starfi.
- Góð samskiptahæfni.
- Góð íslenskukunnátta er algjört skilyrði.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Styttri vinnuvika, stytting að hluta til notuð í vetrar-, páska- og jólafrí
Íslenska










