

Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi á Ströndum - grunnskólakennari
Draumastarfið þar sem vegurinn endar. Það vantar kennara í Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi á Ströndum.
Langar þig búa þar sem kyrrðin og róin á heima, búa í fallegri sveit í skemmtilegu samfélagi og kenna í litlum sveitaskóla þá gæti þetta verið tækifærið.
Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi á Ströndum leitar að skapandi, metnaðarfullum og sjálfstæðum grunnskólakennara fyrir komandi skólaár. Um er að ræða kennslu á miðstigi, en í skólanum eru í dag 3 börn.
Þetta er einstakt tækifæri til að prófa að búa í litlu, skemmtilegu og samheldnu samfélagi þar sem einstaklingsmiðað nám og sköpun fá að blómstra í faðmi stórbrotinnar náttúru.
Hæfniskröfur:
-
Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla á Íslandi er skilyrði.
-
Rík hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði.
-
Hugsun út fyrir kassann, sköpunargleði og metnaður í starfi.
-
Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvæðni.
-
Áhugi á að búa og starfa í litlu samfélagi í náttúruparadís.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Sverrisdóttir oddviti í síma 863-8008 eða á [email protected]
-
Umsjónarkennsla, skipulagning og framkvæmd náms á miðstigi.
-
Skapandi útfærsla á námi sem hentar fámennum skóla.
-
Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla á Íslandi er skilyrði.
-
Rík hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði.
-
Hugsun út fyrir kassann, sköpunargleði og metnaður í starfi.
-
Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvæðni.
-
Áhugi á að búa og starfa í litlu samfélagi í náttúruparadís.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Enska
Íslenska










