

Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk - Hnotubergi
Skammtímadvöl er fyrir fötluð ungmenni sem dvelja þar í mislangan tíma, markmið og hlutverk skammtímadvalar er að veita ungmennum og fjölskyldum þeirra stuðning við sín daglegu verkefni.
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80%. Um er að ræða vaktavinnu þ.e. morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. Ráðning er frá og með 1. september 2026
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
- Leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
- Almenn heimilisstörf
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
- Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hildur Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2026
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska


































