

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða til starfa þroskaþjálfa eða starfsmann með sambærilega menntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og sjálfstætt líf.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld og helgarvaktir. Við erum að óska eftir starfsmanni í 80 % starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Framfylgir hlutverki og markmiðum starfsstöðvar
- Sinnir faglegum verkefnum starfsstöðvarinnar undir stjórn forstöðumanns
- Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
- Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotanda
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Almenn heimilisstörf
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfafræða, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. Starfsleyfi á viðeigandi sviði
- Reynsla af sambærilegum störfum með fötluðu fólki æskileg
- Samstarfs og skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og samviskusemi
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópska tungumálaramma
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð tölvukunnátta
- Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
- Ökuréttindi skilyrði
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.
Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma: 664-5726, netfang: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 13.júlí 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska
































