
Sólheimar ses.
Sólheimar hafa starfað að mannrækt, umhverfis- og menningarmálum í 95 ár. Í byggðarhverfinu Sólheimum búa og starfa um 100 manns. Rekin er fjölþætt atvinnustarfsemi, s.s. öflug félagsþjónusta, gróðrarstöð, skógrækt, verslun, kaffihúsi, kaffibrennsla, nytjamarkaður, vefverslun, jurtastofa og gistiheimili. Á staðnum eru fimm mismunandi vinnustofur; leirgerð, listasmiðja, kertagerð, vefstofa og smíðastofa. Menningarstarfsemi er fjölbreytt, en á Sólheimum er sögusafn, sýningarsalir, höggmyndagarður, trjásafn, kirkja, fræðasetrið Sesseljuhús og íþróttaleikhús og sundlaug.
Gildi Sólheima eru; Kærleikur, virðing, sköpunargleði og fagmennska.

Deildarstjóri yfir sjálfstæðri búsetu
Félagsþjónusta Sólheima óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra til starfa, í þjónustu við íbúa í sjálfstæðri búsetu.
Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu, en möguleiki á tilfallandi vöktum.
Í sjálfstæðri búsetu búa 24 fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir og stöðugildin 7.
Starfsfólk vinnur eftir þjónandi leiðsögn, hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu- og starfsáætlunum. Deildarstjóri vinnur í samræmi við lög og reglur í málefnum fatlaðra.
Deildarstjóri tekur þátt í að leiða uppbyggjandi starf í þessari þjónustueiningu og leggur sig fram við að skapa jákvæða og öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukinna lífsgæða fyrir íbúana.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja faglegt starf í samráði við forstöðumann Búsetusviðs
- Daglegur rekstur þjónustueiningarinnar
- Kemur að starfsmannamálum og vaktaskýrslugerð í samvinnu við forstöðumann.
- Leiðir innra starf á heimilum í samráði við forstöðumann
- Ber ábyrgð á að framkvæmd þjónustunnar sé samkvæmt fyrirliggjandi þjónustuáætlunum og í samræmi við lög og reglur
- Stuðlar að jákvæðum starfsanda og að starfsemin sé í anda gilda Sólheima
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýstist í starfi, s.s. þroskaþjálfanám eða félagsliðanám
- Reynsla af vinnu með fötluðum einstaklingum nauðsynleg
- Reynsla af umönnun mikilvæg
- Reynsla af starfsmannahaldi og stjórnun æskileg
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Reglusemi áskilin
- Almenn góð tölvukunnátta nauðsynleg
- Starfsmaður skal hafa hreint sakarvottorð
- Bílpróf nauðsynlegt
- Starfsmaður þarf að starfa í samræmi við gildi Sólheima
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að líkamsrækt og sundlaug, niðurgreiddur hádegisverður virka daga og möguleiki á hagstæðu húsnæði.
Auglýsing birt29. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólheimar 168279, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Stuðningsfulltrúi- Íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Málastjóri í Laufeyjarteymi
Landspítali

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær

Starfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær

Leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
Sveitarfélagið Skagafjörður

Bílstjóri í þjónustu við fatlaða og eldri borgara
Teitur

Félagsliði/leiðbeinandi í Stólpa Egilsstöðum
Stólpi Egilsstöðum

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Starfsfólk í skammtímavist og stuðningsþjónustu
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi óskast til starfa á skammtímadvöld fyrir fötluð ungmenni - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær