
Starfsfólk í skammtímavist og stuðningsþjónustu
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir starfsfólki í störf við skammtímavistun og í stuðningsþjónustu á Reykhólum. Um skemmtileg og krefjandi störf er að ræða.
50 - 100% stöður í skammtímavistun.
15-50% stöður í stuðningsþjónustu
Um framtíðarstörf er að ræða og stöður eru lausar strax eða eftir samkomulagi.
Aðstoð við þjónustunotendur til sjálfshjálpar og stuðla að þátttöku þeirra í samfélaginu.
Aðstoð við þjónustunotendur við athafnir daglegs lífs og heimilishald.
Setja sig inn í tjáningarform og sérstakar aðstæður þjónustunotenda.
Fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan þjónustunotenda og aðstoða við heilsufarslega þætti.
Vinnur eftir þjónustuáætlun í samvinnu við þjónustunotendur og yfirmann.
Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki, jákvæðni og hæfni í mennlegum samskiptum
Íslenskukunnátta
Bílpróf
Hreint sakavottorð
Íslenska










