
Umhverfis- og skipulagssvið

Rafvirkjameistari / Rafiðnfræðingur
Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu leitar að reyndum og færum rafvirkjameistara og rafiðnfræðingi til starfa á skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu. Starfið felur í sér umsjón með rafmagnsmálum og tengdum verkefnum í fasteignum í eigu og umsjón Reykjavíkurborgar. Verkefnin krefjast þverfaglegrar samvinnu bæði innana fagsviða borgarinnar sem og annarra hagsmunaaðila.
Verkefni deildarinnar eru meðal annars að hafa yfirumsjón með nýframkvæmdum, nýbyggingum og viðhaldi á eignasani Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru fjölbreytt og hafa tengingu við Græna planið, heildarstefnu borgarinnar í fjáfestingum og lykilverkefnum í borgarumhverfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðbragðsþjónusta.
- Verkefnastjórnun.
- Meistaraábyrgð gagnvart Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Orkuveitu Reykjavíkur.
- Ástandsmat raflagna og búnaðar.
- Gerð viðhaldsáætlana, annarra áætlana og útboða.
- Eftirlit og samvinna með verktökum og rekstraraðilum.
- Leiðbeinandi hlutverk gagnvart rafverktökum um tæknilegar úrlausnir verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggild meistaréttindi í rafvirkjun.
- Lokapróf í rafiðnfræði.
- Aukin menntun á fagsviði kostur.
- 10 ára reynsla á fagsviðinu.
- Góð færni í mannlegum og rituðum samskiptum.
- Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Haldbær reynsla af tæknimálum, viðhaldi og rekstri tæknibúnaðar.
- Haldbær þekking á helstu stjórnkerfum raflagna, s.s. ljósakerfum, virkni iðntölva, hraða- og tíðnibreyta og annarra helstu stýrikerfa.
- Haldbær þekking á út- og neyðarlýsingu ásamt þekkingu á hönnun lýsingar.
- Íslenskukunnátta C1 í samræmi við í samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta B2.
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðRafvirkjunTeymisvinnaVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Rafvirki eða rafvirkjanemi með reynslu
Rafsveinn ehf

Rafvirki - Vélstjóri - Vélvirki
Heitirpottar.is

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum
JBT Marel

Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.

Ljósameistarann vantar fleiri hendur á verkstæði
Ljósameistarinn ehf

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Commissioning Manager
atNorth

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Tæknimaður á verkstæði / Raftæki
Raftækjaverkstæðið

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf