

Verkefnastjóri í skipateymi Atlantik
Atlantik leitar að öflugum verkefnastjórum til liðs við skipateymið okkar. Störfin eru fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg og hentar einstaklingum vel sem hafa gaman af skipulagningu, mannlegum samskiptum og halda mörgum boltum á lofti í einu. Atlantik þjónustar fjölda skemmtiferðaskipa sem heimsækja Ísland ár hvert og gegna verkefnastjórar lykilhlutverki í að tryggja að upplifun gesta og samstarfsaðila verði framúrskarandi.
Hjá Atlantik starfa um 40 manns á skrifstofu fyrirtækisins þar sem fagmennska, frumkvæði, teymisvinna og virðing eru leiðarljós í öllu okkar starfi. Þessi gildi mynda grunninn að því hvernig við vinnum saman, veitum framúrskarandi þjónustu og byggjum upp sterka, jákvæða og metnaðarfulla vinnustaðamenningu.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf sem veita frábært tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu í ferðamennsku og þjónustu. Vegna eðlis starfsins getur vinnuálag verið breytilegt og því gefast oft tækifæri til yfirvinnu yfir sumartímann. Við leitum að einstaklingum sem sýna sveigjanleika, frumkvæði og eru reiðubúnir að leggja sitt af mörkum þegar á þarf að halda.
Ráðningar, þjálfun og utanumhald leiðsögumanna.
Skipulagning og mönnun fjölbreyttra ferða fyrir farþega skemmtiferðaskipa.
Dagleg samskipti við samstarfsaðila.
Miðlun upplýsinga og trygging þess að rétt gögn berist á réttum tíma.
Skráning og utanumhald upplýsinga í bókunar- og upplýsingakerfum.
Áætlunargerð og mönnun rútuverkefna fyrir hópa
Lausnamiðuð viðbrögð við breytingum og áskorunum sem kunna að koma upp í daglegum rekstri.
Skipulagning og utanumhald skiptidaga skemmtiferðaskipa við komur til landsins.
Samvinna við aðrar deildir Atlantik til að tryggja framúrskarandi þjónustu.
Menntun sem nýtist í starfi.
Góð þekking á Íslandi og framboði ferðaþjónustu innanlands
Reynsla af störfum í ferðaþjónustu er kostur.
Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
Nákvæmni og góð yfirsýn.
Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni.
Sveigjanleiki og geta til að forgangsraða verkefnum.
Góð tölvukunnátta, reynsla af Microsoft Office, og öðrum upplýsingakerfum.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. Önnur tungumál eru kostur.
Faglegt, skemmtilegt og hlýlegt vinnuumhverfi
Fjölbreytt og lærdómsrík verkefni
Tækifæri til starfsþróunar og að vaxa í starfi
Öflugt félagslíf og reglulegir viðburðir
Aðgengi að fræðslu og þjálfun
Góð vinnuaðstaða og sveigjanlegur vinnutími í vetrarvinnslu
Ýmis fríðindi tengd ferðaþjónustu innanlands
Enska








