Visitor ferðaskrifstofa
Visitor ferðaskrifstofa
Visitor ferðaskrifstofa

Sérfræðingur í flugbókunum – Viðskiptasala

Visitor ferðaskrifstofa leitar að reynslumiklum og þjónustuliprum einstaklingi til starfa í viðskiptasölu fyrirtækisins.

Við leitum að einstaklingi með mjög góða reynslu af Amadeus bókunarkerfinu, ríka þjónustulund og metnað til að veita fyrirtækjaviðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Flugbókanir og útgáfa farseðla í Amadeus.

  • Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini.

  • Tilboðsgerð og leit að hagkvæmustu ferðatengingum.

  • Breytingar á bókunum, endurútgáfa farseðla og endurgreiðslur.

  • Bókanir á gistingu og annarri ferðatengdri þjónustu.

  • Reikningagerð og frágangur bókana.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Mjög góð kunnátta og starfsreynsla af Amadeus bókunarkerfinu er skilyrði.

  • Reynsla af flugbókunum og farseðlaútgáfu.

  • Þekking á fargjaldareglum og verðútreikningum.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund.

  • Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.

Fríðindi í starfi

Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf hjá rótgróinni íslenskri ferðaskrifstofu, gott starfsumhverfi og tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.

Auglýsing birt7. nóvember 2026
Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hamraborg 20A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar