Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Liðsfélagi í markaðs- og framleiðsludeild

Iðan fræðslusetur er leiðandi í sí- og endurmenntun fyrir íslenskan iðnað. Við leggjum áherslu á gæði, nýsköpun og þróun fræðslu sem eflir hæfni fagfólks og styður við framþróun iðngreina.

Við leitum að öflugum og skapandi framleiðslu- og viðburðafulltrúa sem hefur metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni, á auðvelt með að vinna með fólki, er forvitinn um nýja tækni og óhræddur við að tileinka sér nýja þekkingu.

Starfið felur fyrst og fremst í sér skipulag og utanumhald framleiðsluverkefna og viðburða. Framleiðsluverkefnin spanna m.a. vefnámskeið, myndskeið, hlaðvörp, kynningarefni og annað fræðsluefni. Áhersla er lögð á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og áhuga á því hvernig tækni og nýjar miðlunarleiðir geta stuðlað að þróun fræðslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning og utanumhald fjölbreyttra framleiðsluverkefna
  • Umsjón með verkáætlunum, tímasetningum og framvindu verkefna
  • Þátttaka í vefverkefnum og þróun stafrænnar miðlunar
  • Samskipti og samstarf við innri og ytri aðila
  • Undirbúningur og framkvæmd viðburða og sýninga
  • Þátttaka í öðrum verkefnum markaðs- og framleiðsludeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla á sviði framleiðslu, stafrænnar miðlunar eða verkefnaumsjónar
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og hæfni til teymisvinnu
  • Frumkvæði, skapandi hugsun og lausnamiðuð nálgun
  • Skilningur á vefumhverfi og samspili fræðsluefnis og tækni
  • Forvitni um þróun stafrænnar fræðslu og nýjar leiðir til miðlunar þekkingar
  • Sveigjanleiki og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur1. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar