
Ísblik ehf
Ísblik er ört vaxandi framleiðslu og þjónustufyrirtæki. Við framleiðum þurrís fyrir matvælaframleiðendur, heilbrigðisstofnanir, rannsóknarstofur, flugfélög, skemmtanaiðnað og einstaklinga, svo eitthvað sé nefnt.
Við sinnum auk þess sérhæfðum hreinsunarverkefnum þar þurrís er notaður til að fjarlægja myglu úr húsum, hreinsun á rafmagnsbúnaði og margvíslegum tækjabúnaði, t.d. eftir bruna. Um er að ræða sérlega umhverfisvæna aðferð sem hentar við flestar aðstæður og flestar tegundir óhreininda. Við bjóðum spennandi starfsumhverfi með fjölbreyttum verkefnum.
Fjölhæfur dugnaðarforkur
Um er að ræða framleiðslu á þurrís, pressun og pökkun á þurrísblokkum auk útkeyrslu til viðskiptavina. Tilfallandi þurríshreinsiverkefni, bæði á starfsstöð og hjá viðskiptavinum. Einnig þáttaka í viðhaldi bílaflota og annars tækjabúnaðar fyrirtækisins, s.s. framleiðsluvéla og annarra tækja. Viðhald og þrif húsnæðis og búnaðar og önnur tilfallandi verkefni.
Við erum lítið teymi þar sem allir skipta máli og mikilvægt að menn geti gengið í öll tilfallandi störf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framleiðsla og pökkun á þurrís.
- Afgreiðsla og útkeyrsla til viðskiptavina.
- Viðhald véla og tækja.
- Tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn menntun
- Hæfileiki til að læra
- Geta til að takast á við viðhald og viðgerðir á tækjabúnaði
- Snyrtimennska, varkárni og auga fyrir smáatriðum
- Hæfileiki í mannlegum samskiptum
- Ökuréttindi
- Íslenskukunnáta er kostur
- Enskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur30. október 2026
Laun (á mánuði)500.000 - 600.000 kr.
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Brekkutröð 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiÁreiðanleikiAðlögunarhæfniBílvélaviðgerðirBremsuviðgerðirFagmennskaFljót/ur að læraHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiÖkuréttindiReyklausSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísiSveigjanleikiTóbakslausÚtkeyrslaVandvirkniVeiplaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sorptunnuþrif ehf. - þrif - fullt starf
Umsókn um almennt starf Sorptunnuþrif

Framleiðslustarf í Silicone - Kvöldvaktir
Embla Medical | Össur

Þjónustusnillingur í afgreiðslu!
UMAMI

Starfsmaður á þjónustustöð á Sauðárkróki
Vegagerðin

Svæðisstjóri - tímabundið starf
Skólamatur

Local Hlutastarf / Part time
LOKAL

Starfsmaður í fraktmiðstöð / Cargo department employee
Airport Associates

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Pizzabakari - Pizza baker
EIRIKSSON BRASSERIE

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Fjarðabyggð