Enterprise Rent-A-Car á Íslandi
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Vaktstjóri

Við leitum að öflugum og jákvæðum vaktstjóra til liðs við Enterprise bílaleigu. Vaktstjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri og hefur bein áhrif á upplifun viðskiptavina, árangur teymisins og gæði þjónustunnar.

Starfið er fjölbreytt, líflegt og krefjandi – enginn dagur er eins. Þú skipuleggur daglega starfsemi, stýrir vaktinni og styður starfsfólk með þjálfun, leiðsögn og eftirfylgni. Jafnframt tekur þú virkan þátt í daglegum verkefnum og tryggir að teymið vinni saman að framúrskarandi þjónustu.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur gaman af samskiptum, tekur frumkvæði og vill þróast í leiðtogahlutverki í hröðu og alþjóðlegu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Tryggir eftirfylgni sölu- og þjónustuþjálfunar í daglegu starfi gagnvart sölufulltrúum með framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina í huga

Tryggir að aðstaða viðskiptavina og starfsfólks sé ávallt snyrtileg

Þjálfun sölufulltrúa nýrra og starfandi starfsfólks í samráði við yfirmann

Vaktaskipan og mönnun fyrir starfsfólk í afgreiðslu og í bílaþvotti

Ber ábyrgð á að viðhalda þjónustustigi og hámarka nýtni unna tíma

Uppgjör skv. verklagsreglum

Ber ábyrgð á daglegri flotastýringu 

Samskipti við viðskiptavini og erfið mál tengd þeim

Menntunar- og hæfniskröfur

B- ökuréttindi
Góð enskukunnátta 

Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Flugvöllum 31, 230 Reykjanesbæ
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar