

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Viltu leiða öflugt starf og hafa áhrif á framtíð samfélagsins? Fjarðabyggð leitar að framsýnum og öflugum leiðtoga í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Hér er um að ræða spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan leiðtoga sem vill leiða áfra, öfluga og fjölbreytta starfsemi fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar.
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar fer með fjölbreytta og mikilvæga málaflokka á sviði félagsþjónustu, fræðslumála auk íþrótta- og tómstundamála í sveitarfélaginu. Á sviðinu starfa öflugur hópur sérfræðinga í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra. Sameiginlegt markmið þeirra er að stuðla að öflugu fjölskylduvænu samfélagi og tryggja íbúum góða, heildstæða og aðgengilega þjónustu.
Við leitum nú að leiðtoga sem hefur skýra framtíðarsýn, býr yfir sterkri stjórnunarhæfni og hefur metnað til að ná árangri.
Sviðsstjóri heyrir undir bæjarstjóra og gegnir lykilhlutverki í yfirstjórn Fjarðabyggðar.. Starfið býður upp á fjölbreytt og krefjandi viðfangsefni, víðtækt samstarf og tækifæri til að leiða breytingar sem hafa bein áhrif á daglegt líf fólks.
- Forysta, stefnumótun og heildarstjórnun fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar.
- Þróun og efling öflugs stjórnendateymis með áherslu á samstarf, árangur og sameiginlega framtíðarsýn.
- Samhæfing og samþætting þjónustu þvert á félags-, fræðslu-, íþrótta- og tómstundamál.
- Forysta um þróunar- og umbótaverkefni sem stuðla að auknum gæðum, nýsköpun og skilvirkni í þjónustu við íbúa.
- Ábyrgð á rekstri, starfs- og fjárhagsáætlanagerð og árangri sviðsins.
- Virkt samstarf við stjórnendur, starfsfólk, kjörna fulltrúa og aðra hagaðila um þróun og eflingu samfélagsins í Fjarðabyggð.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Meistaragráða er æskileg.
- Víðtæk reynsla af stjórnun, rekstri og stefnumótun.
- Sterk leiðtogahæfni og reynsla af því að byggja upp, efla og leiða teymi.
- Þekking og reynsla af rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð.
- Frumkvæði, framsýni og hæfni til að leiða breytingar og umbótastarf.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni ásamt getu til að skapa traust og hvetja aðra til árangurs.
- Góð greiningarhæfni, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Þekking og reynsla af starfsemi sveitarfélaga er kostur.
Íslenska
Enska










