
Safnstjóri
VIVA Museum er nýtt og áhugavert alþjóðlegt safn, sem opnar í miðborg Reykjavíkur í apríl 2027. Við leitum að safnstjóra í 100% starfshlutfall.
Helstu verkefni safnstjóra eru að annast daglegan rekstur, vinna að uppsetningu sýninga og varðveislu safngripa. Þá skipuleggur safnstjóri fjölbreyttar menningartengdar dagskrár og hvers kyns aðra viðburði.
Um er að ræða dagvinnu, en safnstjóri þarf þó jafnframt að geta unnið utan hefðbundins vinnutíma í tengslum við einstaka viðburði.
Helstu verkefni eru:
- Daglegur rekstur safnsins.
- Daglegur talsmaður safnsins gagnvart gestum, áhugasömum og fjölmiðlum.
- Yfirumsjón með munavörslu, skráningu, úrvinnslu og kynningu á safnmunum.
- Umsjón með safnkennslu.
- Skipulagning viðburða, sýninga og dagskrár safnsins.
- Vinna við stefnumótun, framtíðarsýn og framkvæmd safnastarfa.
- Samstarf við erlenda listamenn og söfn.
Hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og þekking á sviði safnamála.
- Reynsla af rekstri.
- Reynsla af skipulagningu viðburða.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Samskiptahæfni og færni til koma fram fyrir hönd safnsins, í ræðu og riti, á óaðfinnanlegri íslensku og ensku. Aukin tungumála kunnátta er kostur.
Aðrir þættir sem nýst geta í starfi.
Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
DanskaValkvætt
SpænskaValkvætt
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
