Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Framkvæmdastjóri Tæknisviðs

Ert þú framsýnn leiðtogi með ástríðu fyrir tækni og öflugri liðsheild? Vilt þú leiða þróun tæknilegra innviða og kerfa sem styðja við lyfjaframleiðslu í alþjóðlegu umhverfi? Þá gæti þetta verið tækifærið fyrir þig!

Coripharma leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra tæknisviðs. Við leitum að einstaklingi sem sameinar stefnumótandi sýn, reynslu af tæknirekstri og hæfni til að leiða fólk og umbætur.

Framkvæmdastjóri tæknisviðs (e. Director of Engineering Operations) leiðir stefnumótun og rekstur sviðsins og ber ábyrgð á vélbúnaði, hugbúnaði, framleiðslukerfum, tæknilegum innviðum og fasteignum félagsins. Í hlutverkinu felst að tryggja rekstraröryggi, leiða fjárfestingar og stöðugar umbætur og stuðla að skilvirkni, gagnaöryggi og gæðum í samræmi við kröfur lyfjaframleiðslu (cGMP)Undir framkvæmdastjóra tæknisviðs heyra tæknideild, tölvudeild og umhverfis-, heilsu- og öryggismál. Á sviðinu starfa í dag 14 manns. Rík áhersla er lögð á þróun öflugra teyma, samstarf þvert á félagið, áhættustýringu og sjálfbærni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði eða sambærilegu tækninámi t.d. vélfræði.
  • Að minnsta kosti fimm ára stjórnunarreynslu, helst af rekstri stórra tækni- eða upplýsingatæknideilda.
  • Reynslu af því að leiða fjárfestingaverkefni
  • Reynslu af tæknilegum rekstri í reglustýrðu umhverfi þar sem fylgni við staðla skiptir meginmáli.
  • Reynslu af vinnu innan gæðakerfis með reglubundnum innri og ytri úttektum og skipulegum umbótaaðgerðum til að bæta árangur til langs tíma.
  • Leiðtogahæfni, drifkraft og metnað til að byggja upp öfluga liðsheild.
  • Skipulagshæfileika, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur22. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VélvirkjunPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar