Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Prentumsjón / Artwork Coordinator

Coripharma leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi í prentumsjón (artwork coordination) hjá Innkaupa- og áætlanadeild. Í starfinu berð þú ábyrgð á að tryggja gæði prentverka og að þau séu tilbúin á réttum tíma, frá frumgögnum til útgáfu, í samskiptum við viðskiptavini og prentsmiðjur. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi. Ef þú hefur reynslu úr prentiðnaði, sterka þekkingu á grafískum forritum og góða samskiptahæfileika, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirferð frumgagna (technical approval)
  • Yfirferð prófarka og gangsetning prentunar
  • Samskipti við viðskiptavini og prentsmiðjur
  • Miðla upplýsingum til annara deilda um stöðu verkefna
  • Tryggja að verkefni séu unnin innan skilgreindra tímamarka
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun í prentsmíði, hönnun eða grafískri miðlun
  • Starfsreynsla og/eða þekking á prentiðnaði
  • Þekking á grafískum forritum (Adobe)
  • Frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Vinna vel sjálfstætt og með öðrum
  • Framúrskarandi ensku- og tölvukunnátta

Fríðindi:

  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Mötuneyti

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.

Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skulu fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Í kynningarbréfinu skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyðja hæfni til að gegna starfinu.

Auglýsing birt3. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Adobe Experience ManagerPathCreated with Sketch.PrentmiðlarPathCreated with Sketch.PrentunPathCreated with Sketch.Umbúðahönnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar