66°North
66°North
66°North

Grafískur hönnuður

Við hjá 66°Norður leitum að skapandi og metnaðarfullum grafískum hönnuði til að taka þátt í að móta og þróa ásýnd vörumerkisins.

Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér hönnun og útfærslu á efni fyrir markaðsherferðir, stafræna miðla, prentefni og verslanir. Viðkomandi mun starfa náið með öflugu teymi að því að þróa skapandi lausnir og tryggja sterka og samræmda ásýnd 66°Norður.

Við leitum að einstaklingi með menntun á sviði grafískrar hönnunar og að lágmarki 3 ára starfsreynslu. Viðkomandi þarf að hafa sterka hönnunarvitund og næmt auga fyrir smáatriðum.

Við leggjum áherslu á sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð, frumkvæði og metnað. Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskiptahæfni, njóti þess að vinna með öðrum og nálgist verkefni af fagmennsku, jákvæðni og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og útfærsla á grafísku efni í takt við vörumerkjastefnu 66°Norður.
  • Hönnun efnis fyrir markaðsherferðir, stafræna miðla, prentefni og verslanir.
  • Þátttaka í hugmyndavinnu og þróun skapandi lausna fyrir vörumerkið.
  • Tryggja samræmda og sterka ásýnd vörumerkisins á öllum miðlum.
  • Náið samstarf við markaðs-, vörumerkja- og önnur teymi fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði grafískrar hönnunar og að lágmarki 3 ára starfsreynsla.
  • Sterk hönnunarvitund og næmt auga fyrir smáatriðum.
  • Skapandi hugsun, sjálfstæði og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, jákvæðni og metnaður til að ná árangri.
  • Fagmennska, ábyrgð og skipulögð vinnubrögð.
Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar