

Framkvæmdastjóri Framleiðslusviðs
Ert þú framsýnn leiðtogi með ástríðu fyrir framleiðslu, gæðum og öflugri liðsheild? Vilt þú leiða uppbyggingu og þróun lyfjaframleiðslu í alþjóðlegu umhverfi? Þá gæti þetta verið tækifærið fyrir þig!
Coripharma leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra Framleiðslusviðs. Við leitum að einstaklingi sem sameinar stefnumótandi sýn, rekstrarþekkingu og hæfni til að leiða fólk og stöðugar umbætur.
Framkvæmdastjóri framleiðslusviðs (e. Director of Production Operations) leiðir stefnumótun og rekstur sviðsins, sem nær yfir bæði lyfjaframleiðslu og lyfjapökkun. Á framleiðslusviði starfa í dag 85 starfsmenn sem starfa að hluta til á vöktum. Hlutverkið felur í sér ábyrgð á rekstrarárangri og afkomu, áætlanagerð, nýtingu mannafla og fjármuna, fjárfestingum og stöðugum umbótum. Framkvæmdastjóri tryggir að starfsemin sé örugg, skilvirk og arðbær og uppfylli gæðakröfur og gildandi framleiðsluhætti (cGMP).
Rík áhersla er lögð á þróun öflugra teyma, þjálfun starfsfólks og samstarf þvert á félagið. Framkvæmdastjóri leiðir aukningu framleiðslu og innleiðingu nýrra lyfja í framleiðslu og tryggir að fullgilding framleiðsluferla og þrifa sé til staðar. Þá tekur hann þátt í gæðaráði félagsins og vinnur að áhættu- og frávikastjórnun og undirbúningi fyrir úttektir.
- Háskólamenntun í lyfjafræði, tæknifræði, verkfræði eða sambærilegu vísinda- eða tækninámi.
- Reynslu af framleiðslu og þá helst lyfjaframleiðslu og/eða reynslu af gæðastörfum í lyfjaframleiðslu
- Að minnsta kosti fimm ára stjórnunarreynslu í framleiðslu eða gæðaumhverfi.
- Leiðtogahæfni, drifkraft og metnað til að byggja upp öfluga liðsheild.
- Skipulagshæfileika, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Framúrskarandi íslensku- og enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
Íslenska
Enska






