
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Íþróttamiðstöð Norðfjarðar óskar eftir jákvæðri konu með ríka þjónustulund í 100% framtíðarstarf.
Við viljum gjarnan að þú getir hafið störf sem fyrst!
Um vinnustaðinn
Íþróttamiðstöð Norðfjarðar er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem engir tveir dagar eru eins.
Íþróttamiðstöð Norðfjarðar samanstendur af Stefánslaug - 25 metra sundlaug með þremur heitum pottum og gufubaði.
Í sama húsnæði er heilsurækt, og íþróttahúsið er aðeins í fimm mínútna göngufæri.
Við erum samstillt teymi 10 starfsmanna sem vinnum á vöktum - morgna, kvöld og helgar - og erum hluti af íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar, þar sem starfa um 30 manns.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
- Gæsla í íþróttahúsi og líkamsræktarstöð
- Aðstoð við skólabörn fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu
- Afgreiðsla og þjónusta við gesti
- Þrif og almenn umhirða
- Að stuðla að góðri stemningu og jákvæðu viðmóti gagnvart gestum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Æskilegt að hafa reynslu af þjónustustörfum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í blómaheildverslun
Samasem ehf

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Iðmenntaður einstaklingur í eignarumsýsla
Eir hjúkrunarheimili

Starfsfólk í ísbúð og booztbar - Akureyri
Ísbúðin Akureyri

Housekeeper – Luxury Holiday Rental in Laugarás
Lágskógur Vacation Rentals

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

Starfsmaður í árstíðar- og heimilisdeild - BYKO Selfoss
Byko

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Lyfja Lágmúla - þjónusta og ráðgjöf á vaktarúllu
Lyfja

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Næturvaktir í Lyfjavali Hæðasmára
Lyfjaval