

Kennsluráðgjafi hjá Fjarðabyggð með áherslu á leikskóla
Hefur þú reynslu af kennslu og ráðgjöf til leik- og grunnskóla? Hefur þú brennandi áhuga á menntamálum og velferð barna? Vilt þú taka þátt í öflugu skólastarfi í Fjarðabyggð? Þá erum við að leita að þér!
Fjarðabyggð er kraftmikið samfélag þar sem lögð er áhersla á velferð og málefni allra íbúa. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og teymisstarf við úrlausn fjölþættra verkefna.
Starf kennsluráðgjafa skólaþjónustu fjölskyldusviðs heyrir undir stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu. Kennsluráðgjafi í skólaþjónustu veitir faglega ráðgjöf og stuðning til nemenda, foreldrar og starfsfólks skóla með það að markmiði efla skóla sem faglegar stofnanir til að leysa flest þau viðfangsefni sem upp koma í skólastarfi. Kennsluráðgjafi er virkur þátttakandi í samstarfi skóla og stefnumótun í fræðslumálum.
- Ráðleggur kennurum varðandi kennsluaðferðir, námsmat og einstaklingsmiðað nám.
- Veitir stuðning við innleiðingu á nýjum námskrám, kennslusaðferðum og stefnumótun.
- Aðstoðar við skimanir, þróun á námsefni og stuðningsáætlunum fyrir nemendur með fjölbreyttar þarfir.
- Er til ráðgjafar í málum barna í samþættri þjónustu og tekur þátt í teymisvinnu.
- Starfar sem hluti af teymum skólaþjónustu og samþættingar.
- Leyfisbréf til kennslu.
- Kennslureynsla úr leikskóla.
- Viðbótarnám í sérkennslu eða annað sérnám sem nýtist í starfi.
- Þekking á málefnum skólaþjónustu og samþættingar æskileg.
- Góð tölvukunnátta.
- Geta til að taka þátt í og stjórna breytingum.
- Áhugi á þátttöku í teymisstarfi og umbótaverkefnum.
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Skiplagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Mjög gott vald á íslenskri tungu
Íslenska