Icelandair
Icelandair
Icelandair

Sérfræðingur í fræðslu- og menningarmálum

*** English below

Við leitum að öflugum liðsfélaga í People & Culture til að leiða og samræma almenna þjálfun og fræðslu, innri samskipti og upplýsingagjöf auk þess að taka þátt í fjölbreyttum menningartengdum verkefnum.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir aðila sem hefur metnað til að styðja við árangursdrifna og kraftmikla fræðslu- og upplýsingamenningu með því að styrkja núverandi og nýjar samskiptaleiðir innan félagsins.

Áhersla næstu missera verður á stafræna hæfni og hagnýtingu gervigreindar. Það er því mikilvægt að viðkomandi aðili sé framsækinn, fróðleiksfús og búi yfir skapandi hugsun til að koma auga á og grípa tækifæri sem styðja og efla starfsfólk Icelandair.

Ábyrgðarsvið:

  • Samræma og stýra almennri fræðslu þvert á félagið.
  • Setja upp fræðsluáætlun sem styður við áherslur rekstrar og stefnu félagsins.
  • Undirbúa og halda utan um fræðsluefni, framsetningu og námskeið hvort sem er innanhúss eða rafræn.
  • Leiða verkefni sem efla hagnýtingu gervigreindar og stafræna hæfni þvert á félagið.
  • Taka þátt í að þróa og innleiða áætlanir og herferðir í innri samskiptum og upplýsingagjöf.
  • Halda utan um efnistök og framsetningu á innri vef.
  • Þróa og innleiða nýjar leiðir fyrir samskipti og upplýsingagjöf.
  • Styðja við verkefni sem styrkja fyrirtækjamenningu og þátttöku starfsfólks í viðburðum.
  • Miðla stefnu, framtíðarsýn og gildum félagsins í gegnum fræðslu, samskipti og menningartengd verkefni.

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkefnastýringu á sviði fræðslu-, markaðs- og/eða mannauðsmála er æskileg.
  • Reynsla af samstarfi við fjölbreytta hagsmunaaðila.
  • Greiningarhæfni, gagnalæsi og geta til að miðla niðurstöðum á skýran hátt.
  • Þekking og færni á stafrænum lausnum.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samstarfshæfni.
  • Lærdómsvilji og skapandi hugsun.
  • Mjög góð færni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.

Umsóknir ásamt kynningarbréfi og ferilskrá óskast eigi síðar en 13. september 2026.

Nánari upplýsingar veita:

Sigrún Össurardóttir, Director Workplace Services & Culture, [email protected]

Guðlaug Ólafsdóttir, People Manager, [email protected]

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

***

Specialist - Learning & Culture

We are looking for a strong team member to join People & Culture to lead and coordinate general learning and internal communication, as well as take part in a variety of workplace culture-related projects.

This is an exciting opportunity for someone who is motivated to support a performance-driven and dynamic learning culture by strengthening both existing and new communication channels within the company.

In the coming months, emphasis will be placed on strengthening employees’ digital competence and supporting the practical use of artificial intelligence.

If you are forward-thinking, curious and creative, with the ability to identify and seize opportunities that support and empower Icelandair employees, this might be the role for you.

Responsibilities:

  • Coordinate and manage general learning at Icelandair.
  • Develop a learning plan that supports operational priorities and the company’s strategy.
  • Prepare and manage learning materials and courses, whether facilitated in-house or digitally.
  • Lead projects that enhance the practical use of artificial intelligence and digital competence across the company.
  • Participate in developing and implementing plans and campaigns for internal communication and information sharing.
  • Manage content and layout on the company’s internal website.
  • Develop and implement new channels for communication and information sharing.
  • Support projects that strengthen company culture and employee participation in events.
  • Communicate the company’s strategy, vision and values through learning, communication and culture-related projects.

Education, skills and experience:

  • A university degree in a relevant field.
  • Experience in project management within learning, marketing and/or human resources.
  • Experience collaborating with diverse stakeholders.
  • Analytical skills, data literacy and the ability to communicate findings clearly.
  • Knowledge and skills in digital solutions.
  • Ability to work independently and take initiative.
  • Excellent collaboration skills.
  • A curious mindset and creative problem-solving.
  • Very good written and verbal communication skills in both Icelandic and English.

Applications, including a cover letter and CV, should be submitted no later than 13th of September 2026.

For further information, please contact:

Sigrún Össurardóttir, Director Workplace Services & Culture, [email protected]

Guðlaug Ólafsdóttir, People Manager, [email protected]

In accordance with the equal rights policy of Icelandair, all applicants regardless of gender are encouraged to apply.

Auglýsing birt2. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar