
Mannauðsstjóri
Mótaðu mannauðsmál sveitarfélags í mikilli uppbyggingu
Suðurnesjabær er í hraðri þróun. Ný hverfi rísa, íbúum fjölgar og sveitarfélagið er að styrkja innviði sína til framtíðar. Til að fylgja eftir þeirri vegferð leitum við að öflugum mannauðsstjóra sem hefur metnað til að byggja upp faglegt og framsækið mannauðsstarf, í nánu samstarfi við bæjarstjóra og framkvæmdastjórn.
Mannauðsstjóri vinnur náið með framkvæmdastjórn Suðurnesjabæjar, tekur virkan þátt í stefnumótun sveitarfélagsins og nýtur fulls stuðnings bæjarstjóra og æðstu stjórnenda til að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Hér er raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif, móta stefnur, innleiða breytingar og byggja upp mannauðsstarf sem endurspeglar metnað sveitarfélagsins.
Um fullt starf er að ræða og heyrir mannauðsstjóri beint undir bæjarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stefnumótandi ráðgjöf til bæjarstjóra og stjórnenda um mannauðs- og launamál
- Mótun, innleiðing og eftirfylgni mannauðsstefnu sveitarfélagsins
- Umsjón með launavinnslu og jafnlaunakerfi
- Ábyrgð á ráðningarferlum og uppbyggingu nýliðaþjálfunar
- Umsjón með vinnuverndarmálum og áhættumati í samstarfi við trúnaðarmenn
- Þátttaka í fjárhagsáætlanagerð með áherslu á launaáætlun
- Endurskoðun verkferla í mannauðsmálum í samvinnu við framkvæmdastjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði og framhaldsmenntun er æskileg, s.s. á sviði mannauðsstjórnunar, stjórnunar eða opinberrar stjórnsýslu
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Þekking og reynsla af launavinnslu er æskileg
- Þekking á kjarasamningum og opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Reynsla af áætlanagerð er kostur
- Þekking og reynsla af markþjálfun og mótun liðsheildar á vinnustað er kostur
- Leiðtogafærni, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Mjög góð almenn tölvukunnátta er skilyrði, þekking á Kjarna launakerfinu er kostur
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Suðurnesjabær
Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 4.500 íbúa og er í mikilli uppbyggingu. Í sveitarfélaginu eru tveir grunnskólar, tveir leikskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, auk bóka- og byggðasafns og fjölbreyttrar annarrar þjónustu. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag í nálægð við náttúruna, umvafið einstakri strandlengju.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í s. 511 1225.
Íslenska
Enska


