Ísafjarðarbær
Ísafjarðarbær

Mannauðsstjóri Ísafjarðarbæjar

Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf mannauðsstjóra. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf í gróskuríku umhverfi. Mannauðsstjóri hefur yfirumsjón með mannauðsmálum sveitarfélagsins, vinnur náið með bæjarstjóra og sinnir alhliða ráðgjöf til stjórnenda. Meginhlutverk hans er að útfæra mannauðsmál í samræmi við stefnu og áherslur sveitarfélagsins, veita starfsfólki stuðning og aðstoða stjórnendur við faglegar ákvarðanir er lúta að mannauðnum. Mannauðsstjóri ber jafnframt ábyrgð á framkvæmd mannauðsstefnu og vinnur að því að móta sterka liðsheild og heilbrigða vinnustaðamenningu þvert á sveitarfélagið. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri en mannauðsstjóri fer ekki með mannaforráð.

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi sem er jákvæður, þjónustulundaður, flinkur í samskiptum og óhræddur við að sýna frumkvæði. Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 16. nóvember 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Áætlanagerð í mannauðsmálum
  • Samþætting aðferða mannauðsstjórnunar inn í stjórnun stofnana sveitarfélagsins og samræming vinnubragða
  • Handleiðsla, viðtöl, samtöl og ráðgjöf til starfsmanna og stjórnenda
  • Samráð og samstarf við launadeild, eftirfylgni kjarasamninga
  • Gerð og skráning verkferla og verklagsreglna ásamt umsjón með starfsmannahandbók
  • Eftirfylgni mannauðsstefnu og þátttaka í stefnumótun
  • Ráðningar og starfsmannaval, gerð starfslýsinga og starfsmat
  • Umsjón með framkvæmd kannana og eftirfylgni
  • Skipulagning, umsjón og utanumhald fræðslu og stjórnendaþjálfunar
  • Samskipti og samvinna við ýmsa utanaðkomandi aðila
  • Almenn aðstoð, upplýsingagjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
  • Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála eða tengdum greinum
  • Starfsreynsla á sviði stjórnunar- og mannauðsmála
  • Þekking á sviði stjórnsýslu- og vinnuréttar
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra til árangurs
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og geta til að hrinda hlutum í framkvæmd
  • Skipulags- og greiningarhæfni og gagnrýnin hugsun
  • Rík þjónustulund
  • Góð almenn tölvuþekking og aðlögunarhæfni að tækninýjungum
  • Góð íslensku- og enskunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (BHM).

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Umsóknum skal skilað til mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið [email protected]. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veita Baldur Ingi Jónasson, mannauðsstjóri í síma 450-8032 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected] og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Auglýsing birt17. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar