
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Mannauðsstjóri Landsbankans
Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum mannauðsstjóra sem vill skapa umhverfi þar sem starfsfólk getur náð árangri, þróast og notið þess að starfa á kraftmiklum vinnustað.
Mannauðsstjóri leiðir öflugt teymi sérfræðinga og þróar mannauðsstarf bankans áfram af fagmennsku, frumkvæði og góðum rekstrarskilningi. Við leitum að öflugum leiðtoga með ríka samskiptahæfni og metnað til að tengja mannauðsstarfið við stefnu og markmið bankans, sjá þarfir fyrir og styðja stjórnendur og starfsfólk til að ná árangri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og þróa mannauðsstarf í samræmi við stefnu og markmið bankans.
- Tryggja faglega og framsýna ráðgjöf til stjórnenda í mannauðsmálum.
- Móta fræðslustarf bankans, halda utan um starfsþróun og byggja upp þá hæfni sem bankinn þarf til framtíðar.
- Móta markmið og áherslur í kjaramálum og tryggja markvissa eftirfylgni.
- Stuðla að öflugri liðsheild, góðum samskiptum og heilbrigðu starfsumhverfi.
- Nýta gögn og mælikvarða til að skapa yfirsýn, greina tækifæri og styðja við ákvarðanir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi og víðtæk reynsla á sviði mannauðsmála.
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni.
- Yfirgripsmikil þekking á vinnumarkaði, vinnurétti og kjaramálum.
- Reynsla af ráðgjöf til stjórnenda í mannauðsmálum.
- Reynsla af stefnumótun, breytingastjórnun og innleiðingu verkefna.
- Sterk greiningar- og skipulagshæfni og geta til að nýta gögn og mælingar við ákvörðunartöku.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og færni til að byggja upp traust og góð tengsl við ólíkt fólk.
Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur8. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Hæfni
LeiðtogahæfniMannauðsstjórnunRáðningarStarfsmannahaldStefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



