Háskóli Íslands
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands

Mannauðsráðgjafi í starfsumhverfisteymi - Háskóli Íslands á Hólum

Laust er til umsóknar starf mannauðsráðgjafa í starfsumhverfisteymi Mannauðssviðs Háskóla Íslands. Starfshlutfall er umsemjanlegt á bilinu 80%-100%. Starfsstöð er við Háskóla Íslands á Hólum og mun mannauðsráðgjafi veita stjórnendum og starfsfólki þar, sem og við Stofnun rannsóknasetra, ráðgjöf og stuðning á sviði mannauðsmála.

Meginhlutverk mannauðssviðs er að stuðla að faglegum og samræmdum vinnubrögðum í mannauðsmálum, tryggja að meðferð þeirra sé í samræmi við lög, reglur og stefnu Háskóla Íslands. Á mannauðssviði starfa 19 manns, sem búa yfir sérhæfðri reynslu og menntun á sviði mannauðsmála og veita stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf, leiðbeiningar og stuðning.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mannauðsráðgjöf og stuðningur til stjórnenda og starfsfólks Háskóla Íslands á Hólum og Stofnunar rannsóknasetra.
  • Umsjón með mannauðsmálum sem lúta að starfsumhverfi, samskiptum, frammistöðu, vinnustaðamenningu og fjarvistum.
  • Þátttaka í þróun, innleiðingu og nýsköpun á sviði mannauðsmála.
  • Þátttaka í gerð verklagsreglna tengdum starfsumhverfismálum.
  • Ráðgjöf og stuðningur á sviði jafnréttismála.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf með áherslu á mannauðsstjórnun, vinnusálfræði, stjórnun eða skyldar greinar.
  • Reynsla á sviði mannauðsmála.
  • Reynsla af starfsumhverfismálum er kostur.
  • Reynsla af mannauðsmálum í stórum skipulagsheildum eða í opinberri stjórnsýslu er kostur. 
  • Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar, frumkvæði, drifkraftur og metnaður til þess að ná árangri í starfi.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur3. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hólar 146440, 551 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar