Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra

Rauði krossinn á Íslandi leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila til starfa sem aðstoðarmaður framkvæmdastjóra.

Um er að ræða lykilhlutverk í stjórnsýslu félagsins þar sem viðkomandi kemur til með að vinna náið með framkvæmdastjóra, stjórn félagsins og stjórnendum. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir sterkri skipulagshæfni, getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi og getu til að fylgja verkefnum eftir af nákvæmni og fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við framkvæmdastjóra í daglegum störfum.
  • Undirbúningur og umsjón með fundum og fundargerðum stjórnar og annarra lykilfunda.
  • Eftirfylgni með framkvæmd ákvarðana stjórnar í samráði við framkvæmdastjóra.
  • Yfirumsjón með skjalastjórnun og skjalakerfi félagsins og þróun verklags á því sviði.
  • Aðstoð við samningagerð, lögfræðileg álitaefni og önnur verkefni sem tengjast starfsemi félagsins.
  • Utanumhald á ferðabókunum fyrir skrifstofu framkvæmdastjóra.
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun stjórnsýslu og verklags.
  • Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði er kostur.
  • Reynsla af sambærilegu starfi eða störfum innan Rauða krossins kostur.
  • Reynsla af stjórnsýslu, verkefnastjórnun eða sambærilegum störfum er kostur.
  • Mjög góð skipulagshæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt.
  • Frumkvæði, nákvæmni og rík þjónustulund.
  • Framúrskarandi hæfni í ritun og framsetningu á íslensku og góð kunnátta í ensku.
  • Góð þekking á upplýsingatækni og reynsla af stafrænum skjalakerfum.
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og rík hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
Við bjóðum upp á
  • Hvetjandi og samfélagslega meðvitaðan vinnustað.
  • Niðurgreiddan hádegismat.
  • Styrk til heilsueflingar og samgöngustyrk.
  • Tækifæri til að vinna að málefnum sem skipta máli og hafa raunveruleg áhrif.
Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Embættispróf í lögfræðiPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar