Kalka
Kalka

Verkefnastjóri sorpbrennslu og orkuframleiðslu

Kalka sf. óskar að ráða verkefnastjóra til starfa til að leiða verkefni tengd sorpbrennslu og orkuvinnslu í Helguvík. Verkefnastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra.

Miklar breytingar hafa orðið í úrgangsmálum sveitarfélaga og atvinnulífs á undanförnum árum og ekki sér fyrir endan á þeim. Með aukinni flokkun og endurvinnslu hafa úrgangsstraumar til brennslu breyst sem kallar á endurskoðun ferla í meðhöndlun úrgangs hjá Kölku. Þá er einnig unnið að undirbúningi nýtingar á varmaorku frá stöðinni og fjöldi annarra umbóta- og breytingaverkefna er í farvatninu. Hlutverk verkefnastjóra verður að tryggja góða vinnslu í breytingaverkefnum, sinna nauðsynlegri ferlahönnun, skjölun verklags og innleiðingu breytinga.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur áhuga á að sinna fjölbreyttum verkefnum í umhverfi í stöðugri mótun.

  • Vill ganga til liðs við öflugt teymi á skemmtilegum vinnustað.

  • Hefur ástríðu fyrir stöðugum umbótum og vill gera betur í dag en í gær.

Kröfur um menntun og hæfni:

  • Menntun sem nýtist í starfi.

  • Góð almenn tölvufærni.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

  • Stjórnunarreynsla.

  • Reynsla af störfum í svipuðu umhverfi, t.d. stóriðu er mikill kostur.

  • Reynsla af skipulagi viðhaldsverkefna og þekking á eldföstum efnum er kostur.

  • Áhugi á umhverfismálum er skilyrði.

  • Reynsla af ferlastjórnun og vottuðum gæða- og umhverfisstjórnkerfum er skilyrði.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Steinþór Þórðarson framkvæmdastjóri í síma 698 3490 eða með tölvupósti, [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 15. September næstkomandi. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsókir skal senda Kölku Sorpeyðingarstöð, Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ eða með tölvupósti á [email protected].

Kalka sf. er fyrirtæki í eigu sveitarfélaganna Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Fyrirtækið annast sorphirðu og söfnun á endurvinnsluefnum á svæðinu, í samvinnu við verktaka, rekur móttökuplön í Helguvík, Grindavík (lokað sem stendur) og Vogum og sorpbrennslu í Helguvík. Hjá Kölku starfa að jafnaði rúmlega 20 manns. Kalka er aðili að undirbúningsfélagi fyrir nýja hátæknibrennslu á Íslandi og Samstarfsvettvangi sorpsamlaganna á SV horninu.

Meðhöndlun úrgangs frá heimilum og fyrirtækjum hefur breyst ört undanfarin ár og ljóst er að þróunin mun áfram verða hröð á komandi árum. Miklar breytingar hafa orðið í ytra umhverfi, með lögum og reglugerðum um úrgangsmál og væntingar eigenda og viðskiptavina Kölku um ábyrga meðhöndlun úrgangs breytast hratt. Verkefnin framundan eru því mörg og fjölbreytt.

Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar