

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Við hjá Vetur Music leitum að metnaðarfullum og skapandi aðila í stöðu A&R fulltrúa í teymið okkar! Við erum ört stækkandi tónlistarútgáfa á Íslandi, og þurfum því að stækka hópinn til að bregðast við meira umfangi.
Starfslýsing
Við leitum að A&R fulltrúa sem mun vinna náið með tónlistarfólki. Hlutverkið felur í sér að bæði finna nýjar vonarstjörnur og styðja við þær sem eru þegar í hópnum. Starfið felur í sér náið samstarf við listamenn, þróun á þeirra ferli, stuðningur við útgáfu, listræn stjórnun og móta feril listamanna.
Þá fellur einnig undir starfið að sjá um samfélagsmiðla útgáfunnar.
Starfið er lykilhlutverk í fyrirtækinu og kostur ef viðkomandi hefur áhuga á því að taka að sér stærri stjórnunar- og leiðtogahlutverk með fram vexti félagsins.
Við leitum að einstaklingi með reynslu af því að starfa við tónlist, eða í tónlistarbransanum til að hjálpa okkur að byggja upp starfsemi félagins og stuðla að bættu umhverfi tónlistar á Íslandi. Viðkomandi mun starfa náið með stjórnendum og því tækifæri til að geta haft bein áhrif á framtíð tónlistarútgáfunnar.
Þetta hlutverk er fyrir aðila sem hefur brennandi áhuga á því að byggja upp innviði tónlistar á Íslandi, og lætur verkin tala. Mikill sveigjanleiki er á hlutfalli og vinnutíma, og mögulegt að vinna bæði á starfstöð okkar eða í fjarvinnu. Reynsla af markaðsstörfum, verkferlum og útgáfustörfum er kostur en ekki skilyrði.
- Verkefnastjórnun - Móta og setja upp innri ferla, verklag og skipulag.
- Ráðgjöf og samstarf við aðra stjórnendur um stefnu, forgangsröðun og þróun.
- Tengslamyndun: samstarfsaðilar, miðlar, dreifingaraðilar o.fl.
- Tryggja að rekstur og þjónusta Vetur Music styðji við tónlistarfólk
- Markaðsstörf - Samfélagsmiðlar, markaðsáætlun o.s.frv.
- Hafa auga fyrir upprennandi listamönnum og nýjum spennandi tækifærum.
- Vinna náið með listamönnum að listrænni stefnu, útgáfu og framvindu.
- Tengja listamenn við rétta aðila, pródúsenta, lagahöfunda og aðra samstarfsaðila.
- Vera brú milli listamanna og Vetur Music í útgáfuferlinu.
- Fylgjast með hlustunartölum, tónlistarsenunni og tækifærum á Íslandi og erlendis.
- Góður tónlistarsmekkur er skilyrði.
- Þekking og reynsla af íslenska tónlistarbransanum eða útgáfustarfsemi er kostur.
- Reynsla af A&R, artist management, útgáfu, viðburðum eða sambærilegu.
- Sterkt tengslanet eða hæfileiki til að byggja það upp hratt.
- Menntun á sviði lista, viðskipta, markaðs, menningargeira eða sambærilegu er kostur en ekki skilyrði.
- Frumkvæði, skapandi hugsun og löngun til að vaxa í starfi.
- Skemmtilegt og fjölbreytt starf hjá metnaðarfullu ört vaxandi fyrirtæki.
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og vinnutími.
- Tækifæri til að vaxa með fyrirtækinu og taka meiri ábyrgð með tímanum.
Íslenska
Enska










