

Starfsmaður í árstíðar- og heimilisdeild - BYKO Selfoss
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til starfa í fullu starfi hjá okkur í árstíðar- og heimilisdeild í verslun okkar á Selfossi.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er alla virka daga ýmist 08:00-16:00 eða 10:00-18:00, vika í senn. Einnig er unnið þriðja hvern laugardag frá 10:00-16:00.
Við leitum að starfsmanni með:
- Metnaði fyrir að veita framúrskarandi sölu- og þjónustuupplifun til viðskiptavina
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Reynslu af sölu- og þjónustustörfum
- Áhugi á árstíðar- og heimilisvörum
- Nákvæm vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Almenna tölvukunnáttu
- Íslenskukunnáttu
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Íslenska
Enska










