
Ford á Íslandi | Brimborg
Brimborg er sölu- og þjónustuaðili Ford á Íslandi. Brimborg býður breiða línu nýrra og notaða Ford bíla í miklu úrvali ásamt varahluta- og verkstæðisþjónustu.
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims en auk Ford hefur Brimborg umboð fyrir Volvo, Polestar Mazda og Peugeot ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum auk hágæða hjólbarða frá Nokian.
Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, langtíma- og sendibílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 250 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 30 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls níu verkstæði.

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Brimborg leitar að öflugum og þjónustulunduðum Sölu- og þjónustufulltrúa til starfa í verkstæðismóttöku Ford á Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem góð þjónusta og öflugt samstarf við viðskiptavini, verkstæði og aðra samstarfsmenn skipta miklu máli. Við leitum að einstaklingi með áhuga á bílum, nýtur þess að leysa úr þörfum viðskiptavina og vill starfa með reynslumiklu fagfólki í metnaðarfullu umhverfi.
Við bjóðum upp á:
- Fjölbreytt og lifandi starf í hópi reynslumikilla sérfræðinga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Tækifæri til að byggja upp þekkingu á Ford bílamerkinu
- Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tímabókanir á verkstæði
- Sala varahluta- og þjónustu
- Verðáætlanir og tilboð
- Samskipti við viðskiptavini
- Eftirfylgni sölu- og þjónustubeiðna
- Útlán þjónustuleigubíla og dagleg umsýsla þeirra
- Svara fyrirspurnum og erindum sem berast
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf, iðnmenntun eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking á bílum er kostur
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Skipulagshæfni, nákvæmni og góð yfirsýn
- Frumkvæði og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Fagleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Snyrtimenska og stundvísi
Fríðindi í starfi
Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Árleg bólusetning gegn innflúensu
- Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Auglýsing birt26. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Dynamics NAVFrumkvæðiMicrosoft CRMNavisionÖkuréttindiSamviskusemiSölumennskaStundvísiWindowsÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

CityHost (receptionist)
CityHub Reykjavik

Office & Operations Coordinator
Treble Technologies

Áfylling í verslanir og almenn lagerstörf.
TINNA heildverslun

Starfsmaður í hreinlætistækjadeild - BYKO Breidd
Byko

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Fulltrúi í þjónustu
Þjóðskrá

Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Starfsmaður í mötuneyti ÁTVR
Vínbúðin