
Starfsmaður í blómaheildverslun
Við leitum að jákvæðum, ábyrgum og skipulögðum einstaklingi í fjölbreytt og skemmtilegt starf í blómaheildverslunina Samasem ehf.
Ef þú hefur gaman af blómum, fólki og fjölbreyttum verkefnum gæti þetta verið starfið fyrir þig. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og haft metnað fyrir því að veita góða þjónustu.
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 10:00-17:00 og einnig kemur til greina 13:00-17:00 og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
· Afgreiðsla og samskipti við viðskiptavini.
· Skráning sölu og önnur vinnsla í sölukerfi.
· Frágangur og skipulag vinnusvæða, áfylling í hillur og uppröðun blóma og vara.
· Umhirða blóma og þrif og skipulag vinnusvæða.
· Einstakar útkeyrslur (á bíl fyrirtækis).
· Önnur tilfallandi verkefni.
· Góð samskiptahæfni, rík þjónustulund og jákvætt viðmót.
· Sjálfstæði, frumkvæði og ábyrgð í starfi.
· Góð skipulagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum.
· Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
· Almenn tölvukunnátta, reynsla af sölukerfinu DK er kostur.
· Gild ökuréttindi, þar sem starfið felur í sér tilfallandi útkeyrslur.
Íslenska
Enska










