
Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Á tannlæknastofunni starfa 2 -3 tannlæknar og 4 tanntæknar eða aðstoðarmenn.
Við erum að leita að starfsmanni í 100% starf.
Reynsla af vinnu á tannlæknastofu er ekki nauðsynleg en við getum annast þjálfun í starfið. Tvítyngdir umsækjendur eru hvattir til að sækja um starfið.
Tannlæknastofan hefur mikið af viðskiptavinum úr Grafarvogi og nágrenni. Stofan er vinsæl af foreldrum ungra barna enda er lögð mikil áhersla á aðlögun og samvinnu við börn.
Allar almennar tannlækningar eru stundaðar á tannlæknastofunni.
Starfið er fjölbreytt og gefandi. Starfið felst í samskiptum við viðskiptavini, aðstoð og vinnu við tannlæknastól, sótthreinun og þrif áhalda, símasvörun, tímabókunum, afgreiðslu, innkaup og fleira.
Teymisvinna er við tannréttingar með Invisalign skinnum.
Tannlæknastofan er bæði með Facebook, Instagram og Tik tok síðu þar sem hægt er að fá innsýn í dagleg störf okkar.
- Móttaka viðskiptavina, símavarsla, aðstoð og vinna við tannlæknastól, afgreiðsla í móttöku, notkun á þrívíddarskanna, sótthreinsun, áfylling efna og áhalda og fleira.
- Stundvísi, frumkvæði, metnaður í starfi, létt skap og vilji til að blanda geði við fólk, vera hvetjandi við börn og fullorðna.
- Íslenskukunnátta er skilyrði. Það er kostur að vera tvítyngdur.
- Samkvæmt núgildandi reglum þarf starfsmaður að hafa unnið í 3 ár á tannlæknastofu til að fara í raunfærnismat og öðlast réttindi tanntækna.
Íslenska
Pólska
Enska










