

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
Með nýju vörumerki LEAPMOTOR sem hlotið hefur frábærar viðtökur þurfum við fleiri liðsmenn. Við bjóðum upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf sem hentar heilsuhraustum konum og körlum á öllum aldri.
Starfið felst í að fara með bíla á milli þjónustuverkstæðis, bílasölu og samstarfsaðila, fara með uppítökubíla á notuðu söluna, standsetja nýja bíla, létt lokaþrif fyrir afhendingu, sendast með skjöl og annað sem til fellur í söludeild.
Söludeild er staðsett í Þverholti 6 í Mosfellsbæ. Vinnutími er virka daga 9-17
ÍSBAND er fyrirtæki í vexti og býður upp á möguleika að vaxa í starfi.
-
Sækja og sendast með bíla
-
Standsetning nýrra bíla
-
Létt þrif fyrir afhendingu nýrra bíla
- Sendast með skjöl
- Annað sem til fellur
-
Bílpróf er skilyrði
-
C1 "pallbílapróf" eða meirapróf er kostur
-
Jákvæðni og þjónustulund
Íslenska
Enska










