Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Aðstoð á iðjuþjálfunardeild

Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi starfsfólks sem starfar á iðjuþjálfunardeild Reykjalundar ?

Laus er til umsóknar staða aðstoðarmanns á iðjuþjálfunardeild á Reykjalundi endurhæfingu ehf. Staðan er laus frá 1. nóvember og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf þá eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Á Reykjalundi starfa átta þverfagleg meðferðarteymi. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun þó að einnig sé unnið töluvert í hópastarfi. Starfið er því líflegt og fjölbreytt.

Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.

Við leitum að einstaklingi með áhuga á handverki, góða tölvukunnáttu, notalega nærveru og ríka þjónustulund. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiðbeina sjúklingum með handverk í hópum á verkstæði.
  • Fylgjast með birgðum og skipuleggja innkaup.
  • Fara í innkaupaferðir.
  • Frágangur og þrif á búnaði á verkstæði, í þjálfunarhúsi og kaffistofu.
  • Sjá um skráningu í afgreiðslukerfi sjúkraskrárkerfis.
  • Almenn ritarastörf á deild.
  • Sjá um pantanir á skrifstofu- og ræstingarvörum.

Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Sameykis og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), auk gildandi stofnanasamnings Sameykis og Reykjalundar.

Upplýsingar um starfið veita Bára Sigurðardóttir fagstjóri iðjuþjálfa [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri [email protected]

Umsókn skal fylgja starfsferilskra og kynningarbréf ásamt sakavottorði.

Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur14. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar