
Einingaverksmiðjan
Einingarverksmiðjan er staðsett í nýju verksmiðjuhúsnæði að Koparhellu 5, 221 Hafnarfirði.
Einingaverksmiðjan ehf. var stofnuð árið 1994. Frá upphafi hefur Einingaverksmiðjan sérhæft sig í og framleitt forsteyptar lausnir fyrir breiðan hóp viðskiptavina og hefur byggt upp gríðarlega sérþekkingu og áratuga verkkunnáttu. Hjá fyrirtækinu starfa um 75 starfsmenn.

Meiraprófsbílstjóri með reynslu / CE driver with experience - Einingaverksmiðjan
Við leitum að öflugum og áreiðanlegum meiraprófsbílstjóra, með minnst 2 ára reynslu af akstri með tengivagn (CE). Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af akstri með forsteyptar einingar og í akstri veggjavagna.
Starfið felst í akstri með vörur (forsteyptar einingar) til viðskiptavina og sækja efni í námur. Einnig koma dagar þar sem viðkomandi þarf að vinna við lestun og losun á vörum á útilager fyrirtækisins. Fyrst og fremst er samt um að ræða starf við akstur, en mikilvægt að starfsmaður sé sveigjanlegur og tilbúinn í fjölbreytt verkefni þegar aðstæður er þannig.
Kostur ef viðkomandi hefur vinnuvélaréttindi s.s. C - brúkrani, J - lyftari -10 tonn og I - dráttartæki).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur með vörur (forsteyptar einingar) til viðskiptavina
- Lestun og losun
- Sækja efni í námur
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Vinna á lagersvæði þegar ekki verkefni við akstur
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf C og réttindi til að keyra með tengivagn CE
- Vinnuvélaréttindi (C, J og I ) kostur
- Minnst 2 ára reynsla af akstri með tengivagn
- Skipulag, dugnaður og áreiðanleiki
- Jákvæðni, þjónustulund og samskiptahæfni
- Íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt23. september 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Koparhella 5
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Útkeyrsla / lager
Icetransport

Starfsfólk í vöruhús Samskipa
Samskip

Helgarstarf í áfyllingu - Akranes
Ölgerðin

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Vinna á dælubíl / Pump truck operator
Stíflutækni

Lagerstarfsmaður með meirapróf óskast
AB Varahlutir

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.

Bílstjóri á dagrútu DHL í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf

skóla og ferðaþjónustu akstur í árborg
GTS ehf

Heimsendingar á kvöldin - tímabundið starf
Dropp

Bílstjóri - Lagerstarfsmaður
Fiskikóngurinn ehf.

Pökkunar og Flutningamaður óskast
Pökkun & Flutningar ehf