
Korpuskóli, Barðastöðum 2, óskar eftir sjúkraliða til starfa við skólann
Korpuskóli auglýsir starf sjúkraliða laust til umsóknar.
Korpuskóli er sérskóli á Barðastöðum 2 í Grafarvogi og er fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Skólinn er fyrir 8. - 10. bekk í vetur og eru einkunnarorð skólans "Menntun fyrir lífið". Eitt af hlutverkum skólans er að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og stuðning vegna nemenda sem hafa svipaðar þarfir og nemendur í Klettaskóla og Korpuskóla. Einstaklingsmiðun er í námi nemenda og byggt er á forsendum hvers nemanda og styrkleikum þeirra.
Við leitum að sjúkraliða til starfa við skólann 1. nóvember 2026.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Teymisvinna í 10. bekk þar sem lögð er áhersla á faglega nálgun og samstarf við nemendur og umsjónarkennara.
Vinna að gerð umönnunaráætlunar í samstarfi við umsjónarkennara, foreldra og skólahjúkrunarfræðing.
Að veita nemendum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu.
Stuðla að góðum samskiptum og upplýsingaflæði milli hlutaðeigandi aðila (s.s. skóla, heimila og annarra samstarfsaðila).
Að taka þátt í öllu starfi með nemendum á skólatíma.
Starfsleyfi sjúkraliða er nauðsyn
Reynsla af sambærilegu starfi er mikill kostur
Skipulagshæfileikar og hæfni í samskiptum er góður kostur
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð er æskileg
Mjög góð íslenskukunnátta er æskileg
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenska










