
Starfsmaður í skammtímadvöl – Heiðarholt
Heiðarholt í Suðurnesjabæ, heimili sem býður uppá skammtímadvöl fyrir börn og ungt fólk með fötlun, leitar nú að öflugu og áreiðanlegu starfsfólki sem hefur áhuga að vinna með börnum og ungu fólki, býr yfir þjónustulund og æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af umönnun og aðhlynningu
Starfið felst í að veita börnum og unglingum stuðning með það að markmiði að efla sjálfstæði, samfélagslega þátttöku, öryggi og lífsgæði. Lögð er áhersla á virðingu og valdeflingu.
Helstu verkefni:
· Stuðningur við athafnir daglegs lífs
· Stuðningur við samfélagsþátttöku, tómstundir og félagslíf
· Persónuleg umönnun eftir þörfum
· Skráning þjónustu og upplýsinga í rafræn upplýsingakerfi
· Þátttaka í teymisvinnu, fundum og fræðslu
Menntun og hæfni:
· Reynsla í sambærilegu starfi er kostur
· Mjög gjóð samskiptahæfni
· Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra
· Rík þjónustulund
· Jákvætt viðmót, ábyrgðarkennd og frumkvæði
· Góð íslenskukunnátta
· Grunnfærni í tölvunotkun
Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð. Um er að ræða allt að 80% starfi og er æskilegt að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst. Um er að ræða helgarvinnu, næturvaktir og dagvaktir samkvæmt vaktaskipulagi.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Eyrún Ösp Ingólfsdóttir forstöðumaður í síma 425-3160 eða heið[email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 12.október 2026.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf.
Við hvetjum áhugasamt fólk, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um.
Íslenska










