Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Grænaborg

Leikskólinn Grænaborg í Suðurnesjabæ leitar að metnaðarfullum og framsæknum sérkennslustjóra sem hefur brennandi áhuga á velferð og þroska barna og vill leiða faglegt starf í sérkennslu.

Leikskólinn er sex deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla m.a. á að efla styrkleika barna með hreyfingu, náttúru, sköpun og útiveru að leiðarljósi. Í skólanum eru börn á aldrinum 18 mánaða til grunnskólaaldurs.

Leikskólinn er staðsettur í nýlegu og vel búnu húsnæði við Byggðaveg í Sandgerði, umkringdur fallegri náttúru sem nýtist vel í daglegu starfi með börnunum. Starfsmannahópurinn telur um 40 starfsmenn og í skólanum eru allt að 134 börn.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
  • Ber ábyrgð á nánu samstarfi og miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa/sérkennslufulltrúa leikskóla og starfsmanna leikskólans.
  • Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.
  • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu.
  • Hefur yfirumsjón með að áherslum um kennslu annarra sérfræðinga sé framfylgt í leikskólanum og að skýrslur séu gerðar.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim. Veitir þeim stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og/eða reynsa af sérkennslu og stuðningi við börn með fjölbreyttar þarfir er kostur.
  • Reynsa af starfi með börnum á leikskólaaldri.
  • Þekking á gerð einstaklingsnámsskráa, skráningu og mati á framförum er kostur.
  • Góð hæfni í samskiptim og samstarfi við börn, foreldra, starfsfólk og sérfræðinga.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.

Skilyrði fyrir ráðningu er hreint sakarvottorð.

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags .

Umsóknarfrestur er til og með 4.október 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Elsa Hannesdóttir, leikskólastjóri, í tölvupósti á netfangið [email protected]

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt24. september 2026
Umsóknarfrestur4. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Byggðavegur 5
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar