Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Sundlaugarvörður - Íþróttamiðstöðin Garði

Suðurnesjabær auglýsir eftir karlkyns starfsmanni í starf sundlaugarvarðar í íþróttamiðstöðvum sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu en í starfinu felst m.a. klefavarsla í karlaklefum og umsjón með öryggi sundlaugargesta.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Suðurnesjabær rekur íþróttamiðstöðvar í byggðakjörnunum, Sandgerði og Garði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með baðvörslu karla
  • Umsjón með öryggi sundlaugargesta
  • Eftirfylgni með umgengnisreglum
  • Eftirlit með gæðum laugarvatns
  • Umsjón með hreinlæti í og við laug
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti
  • Þrif

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
  • Reynsla af áþekkum störfum kostur
  • Lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Tölvukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 27.september 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Karl Vilhjálmsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðva hjá Suðurnesjabæ, netfang [email protected]

Suðurnesjabær er eitt fjögurra sveitarfélaga á Suðurnesjum og eru íbúar rúmlega 4.400 talsins. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag og samanstendur af íbúakjörnunum Garði og Sandgerði. Sveitarfélagið er ört stækkandi en mikil uppbygging er framundan hjá sveitarfélaginu, fjölgun íbúa og spennandi tækifæri til framtíðar á svæðinu. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðbraut 94, 250 Garður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar