

Sorptunnuþrif ehf. - þrif - fullt starf
Óskum eftir hraustum starfsmanni til starfa við háþrýstiþvott og sótthreinsun í fjölbýli . fullt starf.
Vinnutími er frá 8-16/17 virka daga. Og yfirvinna í boði virka daga og um helgar. Þarf að hefja störf sem fyrst.
Starfsstöð fyrirtækisins er að Desjamýri 8 í Mosfellsbæ (ofan við slökkvistöðina í Mýrum við Úlfarsfell).
Bílpróf er skilyrði en í starfinu fellst m.a. akstur lítilla sendibifreiða með kúplingu.
Íslenska er einnig skilyrði.
Um starfið: Í starfinu felst að þrífa sorpílát, sorpklefa og sorprennur, en til þess höfum við sorptunnuþvottabíl og þarf að koma sorpílátum að honum og þrífa.
Til að þrífa sorpklefa og sorprennur höfum við sendibíla með ýmsum búnaði og fylgja þeir Sorptunuþvottabílnum eftir og sjá um þrif á klefum og sorprennum. Góð laun í boði.
- Akstur og vinna við háþrýstiþrif og sótthreinsun sorpíláta og sorpklefa.
Íslenska
Enska










