Mannauðs- og þjónustusvið
Mannauðs- og þjónustusvið
Mannauðs- og þjónustusvið

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði

Laust er til umsóknar 75% starf þjónustufulltrúa á skrifstofu Múlaþings á Seyðisfirði. Ráðið er í stöðuna frá 1. janúar nk. og er um framtíðarstarf að ræða. Starfsstöð er á skrifstofu sveitarfélagsins við Fjarðargötu 8 á Seyðisfirði og því æskilegt að viðkomandi sé búsettur á Seyðisfirði.

Næsti yfirmaður er sviðsstjóri mannauðs og þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur á móti þeim sem eiga erindi við sveitarfélagið á skrifstofu þess á Seyðisfirði og veitir upplýsingar eða leiðbeinir um þjónustuleiðir og kemur erindum í réttan farveg.
  • Setur fréttir og annan texta, skjöl og myndir á heimasíðu sveitarfélagsins og aðra stafræna miðla stjórnsýslunnar.
  • Kemur að vinnu við stafræna miðla í samráði við sérfræðing stafrænna lausna.
  • Vinnur náið með verkefnastjóra upplýsinga- og kynningarmála varðandi upplýsingagjöf útávið og ímynd sveitarfélagsins í gegnum stafræna miðla.
  • Starfsmaður veitir starfsfólki endurgjöf vegna framsetningar efnis/upplýsinga sem eru að birtast á heimasíðu sveitarfélagsins.
  • Sinnir símavörslu í þjónustuveri sveitarfélagsins og afgreiðir erindi í samráði við annað starfsfólk.
  • Veitir íbúum, og öðrum sem til skrifstofunnar leita, faglega og góða þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af störfum hjá stjórnsýslu sveitarfélags kostur
  • Þekking á almennum tölvuforritum og leikni í upplýsingatækni
  • Samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og metnaður
  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni í textagerð ásamt góðri enskukunnáttu
  • Góð þjónustulund og öguð og nákvæm vinnubrögð
Auglýsing birt14. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnargata 44, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar