Akademias
Akademias
Akademias

Fræðsluráðgjafi - Viltu nýta reynslu þína til að hjálpa vinnustöðum að ná árangri með fræðslu?

Vinnustaðaskóli Akademias leitar að reynslumiklum og drífandi fræðsluráðgjafa í teymið. Við leitum að þér sem átt auðvelt með að byggja upp traust, skilja þarfir ólíkra vinnustaða og breyta hugmyndum í markvisst fræðslustarf.

Fræðsluráðgjafar okkar vinna náið með fræðslu- og mannauðsstjórum og eru þeim öflugur samstarfsaðili við skipulag, framkvæmd og eftirfylgni fræðslu. Þú hjálpar viðskiptavinum að greina fræðsluþarfir, móta áætlanir og nýta rafrænar fræðslulausnir til að ná árangri.

Megináhersla starfsins er á ráðgjöf og samstarf við núverandi viðskiptavini. Þú tekur einnig þátt í að kynna lausnir Akademias fyrir nýjum vinnustöðum og byggja upp ný viðskiptasambönd.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf um stefnu og skipulag fræðslumála og greining á fræðsluþörfum vinnustaða.
  • Gerð fræðsluáætlana og stuðningur við framkvæmd þeirra í nánu samstarfi við viðskiptavini.
  • Innleiðing námsefnis í kennslukerfi og umsjón með rafrænni fræðslu.
  • Eftirfylgni með þátttöku og árangri fræðslustarfs og tillögur að umbótum.
  • Kynning og sala á fræðslulausnum Akademias til nýrra viðskiptavina, með þarfir þeirra að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af fræðslu- eða mannauðsmálum, ráðgjöf til vinnustaða eða sambærilegum verkefnum.
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að byggja upp traust, greina þarfir og kynna lausnir.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að leiða verkefni sjálfstætt og fylgja þeim eftir.
  • Góð tæknifærni og áhugi á rafrænni fræðslu. Reynsla af kennslukerfum á borð við AVIA, Eloomi, Learncove eða Relesys er kostur.
Auglýsing birt17. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 23, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar