Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Lyfjaskömmtun Apótekarans - framtíðarstarf

Apótekarinn leitar að traustum og nákvæmum starfsmanni til starfa í lyfjaskömmtun Apótekarans. Innan einingarinnar starfar samheldinn og metnaðarfullur hópur þar sem rík áhersla er lögð á góðan starfsanda og góða þjónustu við viðskiptavini.

Vinnutími er kl 8-16/ kl 9-17 alla virka daga (til skiptis í viku og viku).

Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið:

- Vinna við skömmtunarvélar.

- Pökkun lyfjasendinga

- Önnur almenn og tilfallandi verkefni við lyfjaskömmtun.

Hæfniskröfur:

- Reynsla af starfi í lyfjaskömmtun, apóteki eða við framleiðslu er kostur.

- Lyfjatæknimenntun er mikill kostur.

- Innsýn og áhugi af vinnu samkvæmt gæðaferlum.

- Góð tækni og tölvukunnátta er kostur.

- Nákvæmni í vinnubrögðum er skilyrði.

- Góð samskiptahæfni.

- Lágmarksaldur er 20 ára.

Apótekarinn er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.

Hvað býður Apótekarinn?

  • Frábær samvinna innan keðju apóteka
  • Samkeppnishæf laun
  • Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Augastað Gleraugnaverslana
  • Öflugt starfsmannafélag
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Skóstyrkur

Nánari upplýsingar um starfið veita

Hera Jóhannsdóttir, faglegur forstöðumaður [email protected] og
Eygló Kristinsdóttir, verkefnastjóri á mannauðssviði [email protected] og

Um Apótekarann:

Apótekarinn rekur í dag 27 lyfjaverslanir og 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, Lyfjaskömmtun Apótekarans og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.

Auglýsing birt9. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skipholt 50B, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar